Browse audiobooks narrated by Jóhann Sigurðarson, listen to samples and when you're ready head over to Audiobooks.com where you can get 3 FREE audiobooks on us
7 audiobooks in our catalogue, every one with its narrator named.
[Icelandic] - Harry Potter og dauðadjásnin
"„Færið mér Harry Potter,' sagði rödd Voldemorts, „og enginn mun hljóta skaða. Færið mér Harry Potter og ég mun láta skólann óáreittan. Færið mér Harry Potter og ykkur mun verða launað ríkulega.' Þegar hann fer upp í hliðarvagninn á mótorhjóli Hagrids, yfirgefur Runnaflöt í síðasta sinn og svífur upp til himna veit Harry Potter að Voldemort og drápararnir eru ekki langt undan. Verndargaldurinn, sem hefur haldið Harry öruggum, er nú rofinn, en hann getur ekki haldið áfram að vera í felum. Myrkrahöfðinginn vekur ugg í brjósti allra sem Harry elskar en Harry verður að finna og eyðileggja helkrossana, sem eftir standa, til að stoppa hann. Lokaorrustan verður að hefjast - Harry verður að standa frammi fyrir óvini sínum ... Þematónlist samin af James Hannigan. C 2007 | Pottermore Publishing"
J.K. Rowling (Author), Jóhann Sigurðarson (Narrator)
Audiobook · 26 hrs 35 mins
[Icelandic] - Harry Potter og blendingsprinsinn
"„Þarna sveif það uppi á himninum fyrir ofan skólann; skærgræn hauskúpan með höggormstungunni, merki dráparanna sem þeir skildu eftir sig þar sem þeir höfðu komið ... þegar þeir höfðu myrt ...' Þegar Dumbledore kemur á Runnaflöt eitt sumarkvöldið til að sækja Harry Potter er hönd hans svört og skrælnuð en hann segir ekki af hverju. Leyndarmál og tortryggni breiðast út um galdraheiminn og Hogwartskóli sjálfur er ekki öruggur. Harry er sannfærður um að Malfoy sé með myrkratáknið: það er drápari á meðal þeirra. Harry þarf á kröftugum göldrum og sönnum vinum að halda þegar hann kannar myrkustu leyndarmál Voldemorts og Dumbledore undirbýr hann undir að mæta örlögum sínum. Þematónlist samin af James Hannigan. C 2005 |Pottermore Publishing"
Audiobook · 23 hrs 9 mins
[Icelandic] - Harry Potter og Fönixreglan
"„„Þú deilir hugsunum og tilfinningum með hinum myrka herra. Skólastjórinn telur óráðlegt að þetta haldi áfram. Hann vill að ég kenni þér að loka huga þínum fyrir myrka herranum.'' Hogwart stendur frammi fyrir myrkum tímum. Eftir árás vitsuganna á Dudley, frænda hans, veit Harry Potter að Voldemort mun ekki láta neitt stoppa sig við að finna hann. Það eru margir sem þræta fyrir það að hinn myrki herra snúi aftur en Harry er ekki einn: leyniregla safnast saman í Hroðagerði til að berjast gegn myrku öflunum. Harry verður að leyfa prófessor Snape að kenna sér að verjast ofsafengnum árásum Voldemorts á hug sinn. Þær aukast með hverjum deginum og Harry er að renna út á tíma ... Þematónlist samin af James Hannigan. C 2003 |Pottermore Publishing"
Audiobook · 34 hrs 59 mins
[Icelandic] - Harry Potter og eldbikarinn
"Pottermore Publishing|„Verkefnin eru þrjú og verða lögð fyrir á þessu skólaári. Þau reyna á hæfileika þátttakenda á margvíslegan hátt ... galdragáfur - þor - rökhugsun - og að sjálfsögðu getu þeirra til að kljást við hættulegar aðstæður.' Þrígaldraleikarnir verða haldnir í Hogwart. Galdramenn yfir sautján ára aldri mega taka þátt - en það kemur ekki í veg fyrir að Harry dreymi um að vinna keppnina. Á hrekkjavökunni þegar eldbikarinn velur meistarana verður Harry forviða að sjá nafn sitt meðal þeirra sem galdrabikarinn velur. Hann mun standa frammi fyrir lífshættulegum þrautum, drekum og illum galdramönnum en með hjálp bestu vina sinna, Ron og Hermonie, kemst hann kannski af lifandi. Þematónlist samin af James Hannigan. C 2000"
Audiobook · 24 hrs 50 mins
[Icelandic] - Harry Potter og fanginn frá Azkaban
"„Velkomin í Riddaravagninn, neyðarfarartæki fyrir galdramenn og nornir í ógöngum. Þú þarft ekki annað en að rétta fram sprotann, stíga um borð og við flytjum þig hvert sem þú óskar.' Þegar Riddaravagninn kemur í gegnum myrkrið og stöðvast með ískri fyrir framan hann er það upphafið að öðru mjög óvenjulegu ári í Hogwart fyrir Harry Potter. Sirius Black, strokufjöldamorðingi og fylgismaður Voldemorts, er á flótta - og er að því er virðist að leita að Harry. Í fyrsta spádómafræðitímanum hans sér Trelawney prófessor fyrirboða um dauða í telaufum Harrys. En það sem er kannski það skelfilegasta af öllu eru vitsugurnar sem eru á sveimi um skólalóðina með kossum sínum sem soga sálirnar úr mönnum. Þematónlist samin af James Hannigan. C 1999 |Pottermore Publishing"
Audiobook · 13 hrs 29 mins
[Icelandic] - Harry Potter og leyniklefinn
"„Það eru áætlanir, Harry Potter. Það eru áætlanir um að láta skelfilega atburði gerast í ár í Hogwart - skóla galdra og seiða.' Sumar Harrys Potters einkenndist af versta afmælisdegi sem hann hafði átt, dæmalausum viðvörunum frá húsálfi að nafni Dobby og því að vinur hans Ron Weasley bjargaði honum frá Dursley fjölskyldunni í fljúgandi töfrabíl! Þegar Harry er kominn aftur til Hogwart, skóla galdra og seiða, til að hefja annað ár sitt heyrir hann skrýtið hvísl bergmála um tóma gangana - og síðan byrja árásirnar. Nemendur sem eru eins og þeim hafi verið breytt í stein finnast ... Ískyggilegir spádómar Dobbys virðast ætla að rætast. Þematónlist samin af James Hannigan. C 1998 | Pottermore Publishing"
Audiobook · 10 hrs 38 mins
[Icelandic] - Harry Potter og viskusteinninn
"„Með skjálfandi höndum sneri hann umslaginu við. Á bakhliðinni var purpuralitt innsigli með skjaldamerki: Ljón, örn, greifingi og snákur sem umluktu bókstafinn H.' Harry Potter hafði aldrei heyrt um Hogwart þegar bréfin hófu að detta á dyramottuna á Runnaflöt númer 4. Þau eru skrifuð með grænu bleki á gulleitan pappír og með fjólubláu innsigli og gerð tafarlaust upptæk af hræðilegu frænku hans og frænda. En á ellefta afmælisdegi Harrys ryðst risi með glitrandi augu að nafni Rubeus Hagrid inn með undraverðar fréttir: Harry Potter er galdramaður og hefur fengið námsvist við Hogwart, skóla galdra og seiða. Ótrúleg ævintýri eru rétt í þann mund að hefjast! Þematónlist samin af James Hannigan. C 1997 | Pottermore Publishing"
Audiobook · 9 hrs 28 mins
©PTC International Ltd T/A LoveReading is registered in England. Company number: 10193437. VAT number: 270 4538 09. Registered address: 157 Shooters Hill, London, SE18 3HP. Terms & Conditions | Privacy Policy | Disclaimer
The National Year of Reading starts here. Join thousands of families and schools supporting reading for pleasure across the UK.