Audiobooks narrated by Kristín Helga Gunnarsdóttir | LoveReading4Kids

Audiobooks narrated by Kristín Helga Gunnarsdóttir | LoveReading4Kids

Browse audiobooks narrated by Kristín Helga Gunnarsdóttir, listen to samples and when you're ready head over to Audiobooks.com where you can get 3 FREE audiobooks on us

22 audiobooks in our catalogue, every one with its narrator named.

[Icelandic] - Elsku besta Binna mín

"Sagan ,,gæti hafa gerst fyrir svona fimmtíu árum' eins og segir í bókarbyrjun og segir frá Binnu, níu ára stúlku í smábæ nálægt Reykjavík. Binna hefur þá sérstöðu meðal barnanna í götunni að báðir foreldrar hennar vinna úti, en allar hinar mömmurnar eru heimavinnandi. Binna hefur lykil um hálsinn og sér um sig sjálf. Nóg er af leikfélögum og alltaf líf og fjör. Oftast gengur allt vel en stundum sést Binna ekki fyrir í uppátækjum sínum. Hér er fullorðinn sögumaður að rifja upp atvik úr bernsku sinni. Þetta eru ljúfar minningar og frásögnin létt og skemmtileg. Það er gaman að sjá hvernig fyrsta kynslóð lyklabarna lítur til baka á bernskuárin. Teikningar Margrétar Laxness falla vel að textanum. Fyrir sjö til tíu ára."

Kristín Helga Gunnarsdóttir (Author), Kristín Helga Gunnarsdóttir (Narrator)

Audiobook · 2 hrs 39 mins

[Icelandic] - Bíttu á jaxlinn Binna mín

"„Bíttu á jaxlinn, Binna mín“ eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur er áhrifarík og nærgætin barnabók um það þegar lífið verður erfitt bæði heima og í vinahópnum. Binna glímir við „máttlausu veikina“ á sama tíma og pabbi hennar lendir í lífsháska og öryggi bestu vinkonu hennar, Tobbu, er ógnað. Höfundurinn sýnir á trúverðugan hátt hvernig kvíði, óöryggi og erfiðar aðstæður hafa áhrif á barn, en líka hvernig kjarkur, þrautseigja og vinátta geta hjálpað. Bókin hentar vel til umræðu um tilfinningar, fjölskylduerfiðleika og stöðu barna þegar mikið gengur á, og heldur lesendum samtímis spenntum og nærri hjartanu."

Audiobook · 4 hrs 22 mins

[Icelandic] - Gallsteinar afa Gissa

"Torfi og Gríma eiga virkilega leiðinlega fjölskyldu. Mamma þeirra er skipanaglaður harðstjóri með hollustuæði, pabbinn er viðutan vinnusjúklingur og Úlfur er ömurlegt unglingaskrímsli. Systkinin dreymir um afslappað heimilislíf, gæludýr og gotterí. Getur hinn síglaði sjóari, afi Gissi, látið draumana rætast? Hvað gerist ef Torfi og Gríma eignast óskasteina? Geta óskir verið hættulegar? „… skemmtileg saga sem sver sig í ætt við fyrri bækur höfundar.“ Katrín Jakobsdóttir / DV „… bráðskemmtileg bók fyrir börn á öllum aldri og foreldra þeirra.“ Hildur Loftsdóttir / Morgunblaðið"

Audiobook · 3 hrs 5 mins

[Icelandic] - Í Mánaljósi: Ævintýri Silfurbergþríburanna

"Í Mánaljósi hefur undirtitilinn „Ævintýri Silfurbergsþríburanna“. Það eru 12 ára gamlir þríburar, Íris Ína, Ísabella og Júlíus, sem eru aðalpersónur sögunnar og spannar frásögnin af ævintýrum þeirra rúmlega hálft ár en aðallega segir frá einu sumri sem þau eyða í Kaupmannahöfn. Í upphafi sögunnar eru þau fremur óhamingjusöm börn forríkra hjóna sem ausa yfir þau efnislegum gæðum en hafa engan tíma og takmarkaða ástúð að veita. Þau njóta hins vegar ástar og umhyggju filippeyskrar vinnukonu, Rósalindu. Margar litríkar persónur koma við sögu í þessari bók. Þríburarnir, sem hafa hver sín persónueinkenni, eru sendir hálfnauðugir til sumardvalar hjá ömmusystur sinni, Emilíu Sólborgu, svo að foreldrarnir geti gengið frá skilnaði sínum, sölu og skiptingu eigna, og unnið sína vinnu og yfirvinnu án þess að börnin séu að flækjast fyrir. Emilía frænka býr í Mánaljósi í Friðarbæ, sem er hverfi í Kaupmannahöfn þar sem búa gamlir hippar og alls kyns furðufuglar (fyrirmyndin Kristjanía er auðþekkjanleg). Hjá litskrúðugri Emilíu læra þríburarnir að setja andleg verðmæti ofar hinum efnislegu, auk þess sem þau kynnast bæði jákvæðum og neikvæðum hliðum hins fjölskrúðuga mannlífs í Friðarbæ. Kristín Helga skrifar fjörlegan stíl og er leikin í að búa til aukafléttur inn í meginfrásögn sína þannig að frásögnin er alltaf lifandi og heldur athygli lesandans. Faðir þríburanna, Svanur Silfurberg, er eiginlega sú persóna sem neikvæðust er í bókinni; hann virðist ekkert læra af skipbroti hjónabandsins. Móðir þeirra, Sigurlína, tekur hins vegar jákvæðum breytingum í rás sögunnar, svo og móðuramma þeirra, Karólína, sem fer í meðferð. Í Mánaljósi er bók sem ætluð er eldri lesendum en fyrri bækur Kristínar Helgu. Þrátt fyrir að andstæðurnar séu hreinar og klárar þá er fjallað um alvarleg málefni í þessari bók; málefni sem snerta gildi og verðmætamat, hamingju og óhamingju, líf og dauða."

Audiobook · 6 hrs 26 mins

[Icelandic] - Grímsævintýri: Ævisaga hunds

"Hér fara æviminningar hundheppna hamingjudýrsins Gríms Fífils. Hann var fuglaveiðihundur sem veiddi aldrei fugla þótt hann gerði stundum flugu mein. Besta og Fúli völdu hann sérstaklega upp úr hvolpabæli úti í bæ og hann bjó með þeim og krílunum alla sína hundstíð. Grímur Fífill fór í hundaskóla en það átti ekki við hann. Samt kenndi Grímur Bestu og Fúla miklu meira en þeim tókst nokkru sinni að kenna honum. Góðir vinir ganga ekki endilega allir á tveimur fótum. Grímur Fífill fól Kristínu Helgu Gunnarsdóttur að rita ævisögu sína, enda er hún með áratuga reynslu í að tala við hunda. Síðan bað hann Halldór Baldursson að teikna myndirnar því hann kann líka hundamál. „Það er frásagnarmáti bókarinnar sem gerir hana eftirminnilega og sérstaklega skemmtilega. Í togstreitunni á milli hundmiðjaðrar frásagnar Gríms Fífils á atvikum í lífi sínu og skilnings lesandans á því sem raunverulega átti sér stað lifna æviminningarnar við og verða að ævintýrum.” - Úr umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna „Mér finnst ég skilja hunda betur!“ - Kristján Kristjánsson / Föstudagsþátturinn, N4"

Audiobook · 1 hr 40 mins

[Icelandic] - Milljón steinar: og Hrollur í dalnum

"Í Milljón steinar og Hrollur í dalnum segir frá Heklu sjö ára. Hekla á systurina Kötlu, eins árs, og afar upptekna foreldra, enda á fullu í hinu svokallaða lífsgæðakapphlaupi. Sagan gerist þegar foreldrar systranna sjá færi á því að lyfta sér upp milli anna með því að fara í stutta ferð til Parísar. Ekki væsir heldur um Heklu og Kötlu, því að systurnar dvelja í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu á Nornabjargi í Skessudal á meðan foreldrarnir eru í burtu. Hekla er frísk stelpa með öflugt ímyndunarafl. Á þann eiginleika leikur afi til að forða því að hún fari sér að voða í ánni. Hann spinnur upp kyngimagnaða sögu í ljóðsagnastíl með öllu tilheyrandi, skrímslum, tröllum og huldufólki, og hvikar ekki eitt augnablik frá því að farið hafi verið með annað en berstrípaðan sannleikann. Amma fussar og sveiar, enda stendur hún ólíkt afa báðum fótum á jörðinni. Ömmu er ekkert sérstaklega um sveitina gefið og vildi miklu frekar stússast í búðinni sinni hjá Fjólu en að húka þar í öllum veðrum. Af augljósum ástæðum er Hekla því meiri afa- en ömmustelpa. Kyngimagnaðar verurnar í sögu afa spretta ljóslifandi fram í hugskotsjónum hennar á meðan á sveitadvölinni stendur. Hámarki nær atburðarásin þegar Hekla læðist út til að létta álögum af heimasætunni í Tungu um miðnætti eina nóttina. Henni tekst ætlunarverkið og farsæll endir virðist í sjónmáli þegar hinn misheppnaði veiðihundur Eyjólfur lendir í óvæntum hrakförum. Hann flækist í öngli veiðimanns og þarf að heimsækja dýralækni til að hljóta bót meina sinna. Frásögnin er skrifuð frá sjónarhóli Heklu og einkennist af frábæru innsæi og gætni nánast hvar sem borið er niður. Hekla er afar lifandi og heilsteypt persóna frá höfundarins hálfu. Smáir atburðir geta virst stórir, atburðir rekið hvern annan, myndað æsispennandi atburðarás og ótrúlega ævintýraheima. Stórskemmtilega og æsispennandi saga."

Audiobook · 2 hrs 3 mins

[Icelandic] - Keikó - Hvalur í heimsreisu

"„Keikó – Hvalur í heimsreisu“ eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur er myndskreytt barnabók um fræga háhyrninginn Keikó, sem margir þekkja úr kvikmyndinni Free Willy. Í bókinni er sagt frá ævintýralegri lífsreisu Keikós: frá því að hann er haldinn í sædýragarði, yfir í að hann er fluttur til Íslands, endurhæfður í Klettsvík og síðan látinn halda út í hafið aftur. Lesandinn fylgir Keikó um heiminn, kynnist aðstæðum hans, umönnuninni sem hann fær og voninni um frelsi hans. Bókin er sögð á aðgengilegan hátt fyrir börn, með áherslu á samúð með dýrinu, umhverfis- og náttúruvernd og spurningar um hvernig við komum fram við villt dýr. Myndir Hallgríms Stefáns Ingólfssonar og Aðalsteins Svans Sigfússonar styðja við söguna og gera ferðalag Keikós lifandi fyrir unga lesendur. Hún hentar vel fyrir grunnskólabörn sem hafa áhuga á dýrum, sjónum og umhverfismálum, og má nýta í umræðum um dýravelferð og ábyrgð manna gagnvart náttúrunni."

Audiobook · 1 hr 8 mins

"Fíasól is a seven year old explosion of joy who lives in the gruesome room in Green Grove in Grasby. She lives here with her mum, dad, sister Pippa, who is eleven, and sister Bidda, who is a teenager. There are also the bone idle poodles Hansína and Jensína. They are so lazy that they can hardly be bothered to eat their food. They definitely never want to go out in the rain, and they drag themselves out of bed just before noon. They are so terribly lazy that they only bother to chase cats when they’re asleep. This is why they sometimes lie there fast asleep, barking at invisible cats that only exist in the land of Nod. Once, Fíasól thought that pink was the loveliest colour in the whole world. She wanted to paint all the houses in Green Grove pink, and she thought that the Icelandic flag should be pink. Now she has packed all her pink clothes away in a box. She only wants to wear blue and brown clothes because then you can’t really see that they are dirty. Ingo lives in the house diagonally opposite Fíasól. He is nine years old and is Fíasól’s best friend. “We can never move away from Green Grove,” Fíasól says from time to time. “Why not?” askes Mum. “Well, because we always have to live close to Ingo.” Then she has a little think about this. “Mum, if Ingo’s mum and dad decide to move away, then we’d have to move too. However far away.” “I see,” mumbles Mum absent-mindedly. “In that case let’s hope they never decide to move, because I really love living in Green Grove.” “Yeah, me too,” says Fíasól. “I’m happiest when I’m at home in my snug.” “What’s a snug?” Ingo asked in surprise one time when Fíasól said she was going home to the snug. “Ingo, a snug is a small and cosy place where everyone is safe and happy,” Fíasól replied and ran back home to the snug."

Audiobook · 1 hr 38 mins

"Fíasól is a seven-year-old crab living in Green Grove in Grasby. Well, she is not actually a crab. She is a girl born in the Cancer star sign, and in her opinion that stinks. So she’s decided to adopt a brand new star sign for herself, it’s called the Flowery Butterfly and is a sign made specially for people who don’t want to be Cancerians. She lives in Green Grove with her mum and dad, her big sisters Pippa and Bidda, and a couple of poodles, Hansína and Jensína. Fíasól’s best friend is called Ingo. He is nine years old and lives in the house diagonally opposite hers. Harold, Herbert and Heba live in the house directly opposite. They are also specially good friends of Fíasól’s. “I’ll never have to leave Green Grove,” Fíasól sometimes says. “I’ve got all my friends here, my stuff, my bed, and the food of course.” “You’ll need to go to school,” her ten-year-old sister Pippa retorts. “Yeah, but then I’ll come straight back home because everything I need is here,” Fíasól replies. “What if you need to see the doctor?” Pippa asks. “Then I’ll just make a call and get the doctor to come and see me here,” Fíasól says. “But what if…” Pippa continues, and so it goes on, the sisters bickering day in and day out. “Oh, I have such an amazingly big imagination,” Fíasól sometime says, sounding pleased with herself. She is right of course. “You are queen of your very own enormous imagination,” Fíasól’s mum says to her. “But you’ll have to be careful not to let your ideas fly so high that you lose track of them and they come to a sticky end.” If you live in a big world of imagination you’re either doing just fine, or you’re in trouble. The thing is, it’s often so difficult to recognise whether an idea is good or bad. Good ideas can get you into trouble and bad ideas can look as if they’re rather good, to start with."

Audiobook · 1 hr 14 mins

"Fíasól is an eight-year-old traveller. She celebrated her birthday in pouring rain in a trailer tent in the east of Iceland and gave everyone on the campsite a piece of cake and hot chocolate. Fíasól says that she’s spent half her life sleeping in a tent but Mum says that’s just rubbish. In the hallway at home is a small suitcase that nobody is allowed to touch. Fíasól has stuffed everything into it she might need, should she suddenly have to go travelling. “This family is always going off here there and everywhere,” she says. “I may as well have my suitcase ready if I need to whizz off somewhere. One simply lives in a suitcase, always off somewhere, such a nomad,” she says, shaking her head precociously. She has sometimes heard her grandmother say this when she and her grandfather come back from the Canary Islands. “You don’t even know what a nomad is,” says Pippa laughing. “Yeah, a nomad is a wanderer and I am a wanderer,” replied Fíasól, pleased with herself. Fíasól still lives on Green Grove in Grasby with her mum, dad and her sisters Pippa and Bidda. She also lives there with the noisybags and lazybones Hansína and Jensína who bark non-stop when they’re not sleeping. Then they lie on their backs in the basket in the kitchen, snoring like little monsters. One day there was an awful lot of rain in Green Grove and Fíasól was bored. She painted her face to look like an American native, using yellow, green and blue face paints, and then she implored her mum to let her paint her too. “Please Mum, let me change you into a native American chief,” Fíasól begged, while her mum kept working on her computer. “No, absolutely not,” Mum muttered, preoccupied. “So you’re just a boring old hag,” said Fíasól moodily. “Can’t be bothered, don’t know how to play and don’t want to do anything that’s fun.” "

Audiobook · 2 hrs 20 mins

[Icelandic] - Draugaslóð

"Eyvindur Þóruson og amma hans búa ásamt tveimur köttum í gömlum bústað við Elliðavatn. Þar hefur lífið gengið sinn vanagang þau þrettán ár sem Eyvindur hefur lifað en nú liggur eitthvað í loftinu. Sami magnaði draumurinn sækir aftur og aftur að Eyvindi – þar æða trylltir hestar um í þoku, jörðin opnast, hverir gjósa og kofar brotna í spón. Örlögin leiða Eyvind upp á öræfi þar sem hann fetar magnaða draugaslóð á vettvangi Fjalla-Eyvindar, Reynistaðarbræðra og síðast en ekki síst nýliðinna atburða sem hann sogast inn í án þess að fá nokkru um það ráðið. Kristín Helga Gunnarsdóttir hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp vinsælustu rithöfunda landsins. Draugaslóð er spennandi bók þar sem nútíð og fortíð fléttast saman, útilegumenn og draugar leika lausum hala og óbyggðirnar breiða úr sér."

Audiobook · 5 hrs 8 mins

[Icelandic] - Strandanornir

"Óboðinn gestur birtist óvænt í árlegri veislu Kolfríðar fyrir framliðna ættingja og vini – ófrýnileg skotta sem skelfir bæði hana og barnabörnin þrjú, Úrsúlu og Messíonu, tíu og tólf ára upprennandi nornir, og Valentínus stóra bróður þeirra. Til að kveða óværuna niður þarf fjölskyldan að fara alla leið norður á Galdrastrandir á vit fortíðarinnar og sú ferð verður ekki tíðindalaus."

Audiobook · 6 hrs 31 mins

"“I got a letter!” said Fíasól happily, taking a closer look. “It says: To the amazing and fantastic Fíasól at 8 Green Grove, Grasby. Thank you for being you! Coolest, coolest, coolest of them all!” “You’ve got to be joking!” said Pippa. “What halfwit sends something like that?” Fíasól looked at her sister in indignation. “Halfwit? A letter like this is definitely not written by a halfwit.” Fíasól opened the envelope and drew out a long letter and a number of drawings. “Well, blow me,” she said in surprise. “This must be from a famous artist.” “Read us the letter,” Pippa said impatiently. Fíasól read: “Dear Fíasól, I’ve been meaning to write you many letters to tell you what fun you are and so clever. Here are some pictures of you that I drew. I hope you like them. I’m very good at drawing, just like you. Best of all I like playing with you and I’m so glad to be able to be with you every day. I am always going to wake up with you in the morning and go to sleep with you in the evening and take good care of you all my life. I shall also look after you when others are horrible to you, and I’ll take your side. I’ll tell Pippa off if she winds you up and I’ll help you to tidy up the frightful dump when your mum says you have to. I’ll always be your best friend. Your oldest and best and funniest and coolest of all the friends in the whole wide world, Fíasól who is the coolest.” Pippa stared at her sister in indignation. “Did you write a letter to yourself?” “Yeah, and so what? Does it matter who writes you a letter? Getting a letter now and then is the main thing, isn’t it? And they have to be fun letters, that you can be bothered to read.”"

Fiasol and the little lion robbery

"Once upon a time Fíasól was on the go. It started with Mum and sister Bidda going to Copenhagen. Just the two of them. Pippa was a bit fed up about that, and Fíasól was furious. But then, totally out of the blue, Fíasól and Pippa, together with Grandma Gógó, got to join them. In Denmark they met Auntie Glóa and her boy, Gutti. They visited Great-aunt Lóló, and stayed with Big Stína, a belly dancer with hardly any teeth. Fíasól lost her beanie in the Tivoli park and Grandma was tricked into having a ride on the Odin Express. After an extremely enjoyable trip they then returned to Iceland. But of course that’s not the whole story. During the trip some crazy things happened that the family never talks about – Fíasól because she is so embarrassed about it; Grandma, Mum and Glóa because they’re so shocked by what they did; and Pippa, Gutti and Bidda because they still think it was so stupid. The time has definitely come to tell this story. In order to understand how it all happened, it would be a good idea to check out the travel agreement that they all signed up to, back in Stína’s kitchen. THE GRAND TRAVEL AGREEMENT Binding contract relating to recreational trips During this trip it is totally strictly forbidden to do anything that someone under the age of ten finds boring. Quite the opposite. It is actually every traveller’s duty to do ONLY, JUST AND ABSOLUTELY everything that anyone aged ten or under likes doing best when travelling. Whosoever infringes this Grand Travel Agreement must immediately cease travelling and return home. This rule to be applied within reason. Signed: Fíasól, Mum, Gutti, Pippa, Bidda, Grandma Gógó, Auntie Glóa"

[Icelandic] - Fíasól og litla ljónaránið (Icelandic)

"Manstu þegar mamma og Bidda systir fóru til Kaupmannahafnar að lyfta sér upp? Þær fóru bara tvær. Pippa varð dálítið leið, en Fíasól varð öskureið. En óvænt og alveg upp úr þurru fengu Fíasól og Pippa að koma á eftir þeim með ömmu Gógó í dálitla skemmtiferð. Þær hittu Glóu frænku og Gutta strákinn hennar í Köben og heimsóttu Lóló afasystur. Svo gistu þær hjá Stínu stóru sem var næstum tannlaus magadansari. Og kannski manstu þegar Fíasól týndi húfunni í Tívolíinu og amma Gógó var göbbuð upp í hraðlest Óðins? Og svo fóru þau heim til Íslands eftir vel heppnaða skemmtiferð til Kaupmannahafnar. Auðvitað var það ekki sagan öll! Í ferðinni gerðust fáránlegir atburðir sem fjölskyldan á ennþá erfitt með að segja frá. Fíasól á erfitt með það af því að hún skammast sín svo mikið. Amma, mamma og Glóa eiga erfitt með það af því að þær eru svo hneykslaðar á sjálfum sér. Pippa, Gutti og Bidda eiga erfitt með að tala um það af því að þeim finnst það ennþá svo heimskulegt. Pabbi á hinsvegar erfiðast með það af því að hann var ekki á staðnum og veit svo lítið hvað gerðist. Það er svo sannarlega kominn tími til að segja þessa sögu. "

Iceland’s Mountain Factory

"Seven new graduates from a mountaineering academy in the south-east of Iceland, all with different plans for the future, are sharing a lift back towards Reykjavík when they are driven by a fierce storm to take refuge in an old Nissen hut close to the glacial lagoon of Jökulsárlón. There they decide to set up Iceland’s Mountain Factory – a free state dedicated to nature, sustainability, contentment and the fight against the destruction of the planet. They knit and brew, they go dumpster diving, they cook, they love and dream. Individually, the members of the group approach the project on their own terms, but sharing a thirst for adventure and quest for security. They also, however, belong to a wider community – this cannot be denied, and it leads to conflicts of opinion. One of the girls in the group, Emma, has already made a name for herself as an environmental activist and influencer. She regularly streams the message of the Mountain Factory live online, and has accumulated an expanding number of followers around the world. The day that Emma is found lifeless, floating in a kayak on the lagoon, everything changes."

Audiobook · 7 hrs 23 mins

[Icelandic] - Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels

"Leiðin um Dauðastræti er greið þetta kvöld. Þeir smeygja sér á milli teppa sem hanga hér og hvar þvert yfir götuna til að byrgja leyniskyttum sýn. 'Galdurinn er að ímynda sér að maður sé ósýnilegur, Ishmael, sko, þegar þú mætir þessum vopnuðu mönnum. Vertu agnarsmár og ekki horfa í augun á neinum. Flýttu þér þangað sem þú ætlar án þess að hlaupa. Það vekur grunsemdir ef þú hleypur.' Eitt sinn bjó Ishmael í borg þar sem var líf og fjör alla daga og börn léku sér innan um dulúðuga hnífasala, villiketti og sápugerðarmeistara. Núna er hann fjórtán ára og borgin hans er vígvöllur. Þegar heimilið er rústir einar neyðist hann til að leggja land undir fót og leita skjóls þar sem friður ríkir. En flóttaleiðin er lífshættuleg. Á sama tíma glímir fjölskylda í Kópavogi við það flókna verkefni að fóta sig í nýju landi."

Audiobook · 6 hrs 5 mins

[Icelandic] - Fíasól á flandri: á flandri

"Um bókina: Fíasól er átta ára gamall ferðalangur og óskabarn sem lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi. Hér útvegar hún fjölskyldunni einkaþjón, kallar saman nokkra viðskiptarisa til styrktar góðu málefni, hittir næstum því forsetann og bregður sér í ævintýraferð til útlanda. Úr Fíusól á flandri: Bíddu við, sagði Fíasól við mömmu. Ætlar þú þá að taka peningana sem við Pippa eigum að fá fyrir flöskurnar? Nei, sagði mamma og brosti. Ég borga ykkur út af reikningnum mínum. Hvað skulda ég henni? spurði mamma. Ekki neitt, sagði maðurinn brosandi. Jú, sjáðu til, sagði mamma. Hún á flöskupeningana og ég þarf að fá að vita hvað ég skulda henni. Auðvitað skuldar hún mér. Það er ég sem á þessa peninga sem þú setur inn á reikninginn hennar. Ég og systir mín. Maðurinn leit fast á Fíusól. Nei, þú skuldar mömmu þinni. Ha? Ertu eitthvað lélegur í reikningi? sagði Fíasól með þjósti. Þú skuldar henni mömmu þinni því hún gaf þér lífið sjálft og er að koma þér til manns. Hún fæðir þig og klæðir og gefur þér þak yfir höfuðið, öryggi og skjól, ást og umhyggju, sagði hann og horfði sigri hrósandi á Fíusól. Mamma brosti í laumi þegar hún sá svipinn á Fíusól. Stelpan sú varð í fyrsta skipti á ævinni orðlaus og strunsaði út í bíl. Þú skuldar mér nú samt, er það ekki, mamma? sagði Fíasól blíðlega þegar þær óku af stað. Jú, auðvitað, sagði mamma. Ég fékk miða hjá manninum og ég lofa að borga þér fljótlega. Fíasól sat þögul í bílnum á leiðinni heim. Mamma, ég borga þér til baka alla daga, sagði hún hugsi þegar þær komu heim. Ég meina fyrir lífið, matinn og þakið. Ég borga þér með því að vera skemmtileg, góð og yndisleg og með því að vera vinkona þín, er það ekki?"

Audiobook · 2 hrs 13 mins

[Icelandic] - Fíasól er flottust: er flottust

"Fíasól er flottust er fjórða bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um Fíusól, sem nú er orðin níu ára gömul. Sem fyrr býr hún með foreldrum og tveimur eldri systrum og er ákaflega uppátækjasöm. Bækurnar um Fíusól hafa verið sérlega vinsælar meðal barna og ekki að ósekju, því hér er blandað saman næstum fantastískum ævintýrum og hinu ofurhversdagslega, með dágóðum skammti af uppeldisyfirbragði - allt sett fram af hæfilegri alvöru. Bækurnar um Fíusól eru næstum eins og einskonar smásagnasöfn, með sögum sem tengjast saman í eina heild, en bækurnar skiptast í nokkra kafla sem hver um sig segir frá einu uppátæki. Hér er til dæmis sagt frá skólaverkefni um drauga sem verður til þess að fjölskyldan fer að heimsækja draugasetrið með dramatískum afleiðingum - ekki síst fyrir pabba Fíusólar. Fíasól er mikil útivistarmanneskja og útilegur koma nokkuð við sögu, í einum kaflanum fer hún með afa og ömmu í sumarbústað, en sú ferð endar með ósköpum, og í öðrum kafla langar hana svo mikið að sofa í tjaldi að hún skrúfar rúmið sitt í sundur og tjaldar inni í herberginu sínu. Það innanhúss-útilegu-ævintýri er svo endurtekið þegar þau félagarnir Ingólfur ákveða að nú sé komið sumar og heimta að tjalda úti í garði, en það er enn svo kalt að á endanum flýja þau inn í stofu með kúlutjaldið og sofa þar vært. Og svo koma jólasveinar og sjóræningjar við sögu."

Audiobook · 2 hrs 11 mins

[Icelandic] - Fíasól í fínum málum: í fínum málum

"Fíasól er sjö ára stelpa sem fer sínar eigin leiðir. Til dæmis vill hún BARA ganga í bleikum fötum og svo hefur hún meira að segja rænt sjoppu, en það var nú alveg óvart og hún gerir það aldrei aftur. Oftar en ekki stangast annars fínar hugmyndir Fíusólar á við það sem fullorðna fólkið vill. Og þá getur hún verið í vondum málum. Fíasól í fínum málum er fyrsta bókin um spræka stelpuskottið sem sigraði hjörtu íslenskra bókaorma eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Halldór Baldursson gaf Fíusól líf í leiftrandi myndum."

Audiobook · 1 hr 7 mins

[Icelandic] - Fíasól í Hosiló: í Hosiló

"Fíasól er sjö ára gömul gleðisprengja sem nýtur lífsins fram í fingurgóma. Samt býr hún í hræðilega herberginu í Grænalundi þar sem draugahópur hangir undir rúminu hennar. Hún móðgar jólasveina og strætóbílstjóra og þarf að fara í hættulega fjallgöngu og veiðiferð að næturlagi. Fíasól í hosiló eru gleðisögur af duglegri stelpuskottu eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Sá sem veit nákvæmlega hvernig Fíasól lítur út og er flinkastur allra að teikna hana heitir Halldór Baldursson."

Audiobook · 1 hr 36 mins

[Icelandic] - Mói hrekkjusvín: Misskilinn snillingur

"Mói - Hrekkjusvín eða misskilinn snillingur Flestir snillingar mannkynssögunnar hafa verið misskildir. Í raun hefur enginn kunnað að meta þá fyrr en þeir eru löngu dauðir. Það segir pabbi að minnsta kosti. Ég held að ég sé einn af þeim. Mói hrekkjusvín er eyrnastór götustrákur sem heitir reyndar fullu nafni Marteinn Jörundur Marteinsson. Besti vinur hans, Byssu-Jói, risavaxinn leynikúreki og verndari Móa, er aldrei langt undan, nagar puntstrá, tyggur tóbak og segir: „Ó boj, MÓI!“. Mói fær óteljandi hugmyndir, flestar frábærar og aðeins örfáar sem eru ekkert sérstakar. Hann reynir að sigla á ísjaka til Ameríku og búa til heimagerð nagladekk. Stundum er svo mikið að gera hjá honum að hann gleymir skólatöskunni í skólanum. Stundum bjargar hann lífi fólks hinu megin á hnettinum en samt fara allir á taugum þegar hann skrúfar í sundur raftæki eða hristir nokkra gosflöskur. Einu sinni á ári fá allar mömmur hrekkjusvína á Íslandi nóg af þeim. Þá senda þær villingana sína á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn. Mömmurnar hvíla sig og hrekkjusvínin læra bænir og góða siði. Þegar Mói hrekkjusvín, Orri prestsins og Byssu-Jói fara á kreik getur hvað sem er gerst, draugar fara á stjá í kirkjunni, peningar hverfa úr söfnunarbauknum og moldríkir kúrekar gera allt vitlaust í bíó. Allir þrír hlakka til að fara á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn og á meðan er rólegt í bænum."

Audiobook · 4 hrs 17 mins

©PTC International Ltd T/A LoveReading is registered in England. Company number: 10193437. VAT number: 270 4538 09. Registered address: 157 Shooters Hill, London, SE18 3HP. Terms & Conditions | Privacy Policy | Disclaimer

The National Year of Reading starts here. Join thousands of families and schools supporting reading for pleasure across the UK.